16.8.2012 | 22:23
Menningarnótt (eða öllu heldur dagurinn á undan henni).
Nú er Menningarnótt á næsta leiti og hef ég ákveðið að halda sýningu á myndlist þeirri sem ég hef eignast í gegnum árin, ásamt nokkrum hlutum eftir mig sjálfa. Jafnframt mun ég bjóða upp á vöfflukaffi í tilefni dagsins.
Tek á móti öllum sem hafa áhuga milli kl. 14 og 16 og hlakka til. Vonast til að sjá sem flesta.
Heimilisfangið er Njarðargata 9.
Athugasemdir
Dugleg ertu, góða skemmtun.
Ásdís Sigurðardóttir, 17.8.2012 kl. 11:36
Takk fyrir það. Ég bara virkilega hlakka til.
Bergljót Gunnarsdóttir, 17.8.2012 kl. 19:29
ÉG er of langt í burtu til að koma til þín Bergljót mín. Góða skemmtun
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.8.2012 kl. 10:18
Til lukku með'etta Beggó mín
Dugleg varstu að gera þetta. Efast ekki um að margir komu og skoðuðu listaverkin og þáðu vöfflu hjá þér. Hefði pottþétt kíkt við ef ég hefði verið í bænum. Skrapp vestur að tína aðalbláber og bláber.
Knús á þig
Stella
Stella Aðalsteinsdóttir (IP-tala skráð) 20.8.2012 kl. 23:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.