Verðlaunagripur?

Er þetta verðlaunagripur eða hefndargjöf? Hvar á að koma þessum ósköpum fyrir? Væri ég íþróttamaður liggur við að ég myndi afþakka heiðurinn til þess að þurfa ekki að sitja uppi með gripinn.

Annars óska ég Alexander hjartanlega til hamingju, það er dásamlegt að heyra aftur og aftur, Alexander Petersson skorar!, með ýmsum tilbrigðum.

 Það minnir mig á það gamla góða sem var svo algengt fyrir nokkrum árum, ----- og Guðmundur Hrafnkelsson ver!.

Út frá því smásaga. Vestfjarðavíkingurinn var á fullu á Bíldudal, samtímis alþjóða handboltamóti. Ég var stödd á Vegamótum sem eru veitingahús þar. Magnús Ver var að vinna stóra sigra í Víkingnum, og sjónvarpið var að lýsa handboltamótinu. Gömul kona sem kom þarna inn, horfði smástund á sjónvarpið, leit á mig og sagði, "ætli þeir séu bræður Magnús Ver og þessi Guðmundur Hrafnkelsson ver?"

 


mbl.is Alexander íþróttamaður ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.1.2011 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband