15.11.2010 | 16:48
Jón ó Jón.
Gafst upp á að halda uppi vörnum fyrir Jón Gnarr hérna á moggablogginu, enda ætti hann að vera fullfær um það sjálfur. Ég er búin að þenja mig út í ystu æsar, aftur og aftur, en þar sem hvorki Jón eða ég erum vammlaus, ákvað ég bara að hætta þessu og snúa mér að eigin sjálfi.
Það er óttalaga asnalegt að standa í svona leiðindapoti og karpi, fyrir mann sem veit ekki einu sinni af því, og ekki ætlast til að hann viti, enda er hann fullfær, eins og ég sagði áðan, um það sjálfur. Svo jæja nú jæja , látum hann bara hlæja, þá fer mér kannski að stökkva bros fyrir hamagangi.

Athugasemdir
Sammála því að sjálfið er betri málstaður en einhver Jón sem er ekki einu sinni séra.
Svanur Gísli Þorkelsson, 15.11.2010 kl. 21:48
Naglinn á réttum stað þegar höggið kom á höfuðið.
Bergljót Gunnarsdóttir, 15.11.2010 kl. 22:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.