Að líta undan

Eru stjórnvöld virkilega svo slöpp að þau geti eða vilji ekki sinna þéim sem minnst mega sín. Væri ekki ráð að sveitarfélögin ath. líka sinn gang í þessum málum.

Það þarf að taka  flækjuna sem kallast stjórnarheimilið og greiða úr henni. Ef hún er orðin óhrein, tætt og illa farin þarf bara að gera það sama og á öðrum heimilium, þ.e. taka til og þrífa. En hvað þá um börnin á heimilinu, það er ekki hægt að láta eins og þau séu ekki til, þeim þarf jú að sinna, meira að segja á meðan allt er í skít og drasli.

Verkefni nr. 1 hjá stjórnvöldum ætti að vera að sjá til þess að fólk fái að borða og ekkert múður. Góðgerðarfélög og hjálparstofnanir ættu ekki að þurfa að koma þar að nema um stórkostlegar náttúruhamfarir eða annað slíkt væri að ræða. Hvar eru allar þessar nefndir og ráð sem eiga að sjá um þessa hluti. Eru þær sofandi eða bara alveg sama? Við höfum ekki efni á að hafa þannig fólk í vinnu, hvorki á stjórnarheimilinu eða í borgarstjórn. 

Mér finnst líka orðið óhæft að fulltrúar Besta flokksins sitji bara á grínstólunum sínum með borgarstjóra í farabroddi og hafist ekkert að, annað en að leika aula. Þarna er t.d. heilmikið af peningum að fara í súginn. Mér er búið að finnast þetta fyndið hingað til, en nú er mál að linni. Hætta skal leik þá hæst hann stendur! Víst tekst þeim að gera borgina skemmtilegri og betri ef þeim tekst að skapa fegurra mannlíf, mannlíf sem felst í því að fólkið fái að borða.

Forgangur nr. 1, sjáið til þess að fólk fái að borða, án þess að þurfa að skammast sín fyrir að hafa komist í þá aðstöðu að þurfa hjálp. Burt með allar niðurlægingarbiðraðir!

 


mbl.is Deila á matargjafir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í tíð "vinstristjórnarinnar" hefur fátækt aukist til muna og kjör lítilmagnans hríð versnað, auk þess sem þessari stétt lítilmagnanum hefur fjölgað sem aldrei fyrr. Lítil börn róta nú í ruslinu í leit að mat og gamalmenni eru borin út á götu, og við erum orðin eina ríkið í okkar heimshluta sem neitar sumum ungmennum um skólagöngu, þó þau hafi náð öllum samræmduprófum, út af niðurskurði í menntakerfinu. Á sama tíma er hvergi skorið niður í yfirbyggingunni og milljörðunum sem hefði verið hægt að eyða í að laga mennta- og húsnæðismál og hjálpa bágstöddum öllum kastað á bálið í Brussel. Þetta hyski er ekki vinstrimenn. Ég er vinstrimaður. Vinstrimenn eru lýðræðislega hugsandi fólk sem sólundar ekki fé þjóðarinnar í einkahobbý sín, esb þruglið, meðan börnin róta í ruslatunnunum, heldur virðir jafnrétti manna og vilja fólksins og reynir að tryggja jöfn lífskjör allra. Þessi ríkisstjórn er aftur á móti tilbúin að brjóta lög og reglur í auðvaldsdýrkun sinni, í því skyni að sleikja sig upp við auðvaldið á kostnað almennings. Hæstaréttardómar eru jafnvel hunsaðir, svo sem gerðist í tilfelli Lýsingar, en dómurinn sem þá féll hefði getað forðað þúsundum frá gjaldþroti og vonarvöl. En ríkisstjórnin sýndi með því að hunsa þann dóm, nokkuð sem er víða ólöglegt og hefði eitt og sér nægt sem brottrekstrarsök fyrir ríkisstjórnina, þar sem þrískipt vald er tryggt með lögum í stjórnarskrá, sitt rétta eðli og fyrir hvern hún starfar í raun og veru. Annað hvort voru þau aldrei vinstrimenn, heldur bara Trójuhestar, eða þá eru þau pólítískar mellur sem einhver ill öfl borga undir borðið. Aðrar skýringar standast ekki nánari athugun. Síst af öllu gjammið í nýju trúarbrögðunum hans Steingríms sem hafa gert Davíð Oddsson að allsherjar grýlu og djöfli sem allt sem miður hefur farið í veraldarsögunni er að kenna, og gerir hans menn stikkfría frá öllu og þeir geta jafnvel notað tilvist Davíðs Oddssonar sem afsökun til að fremja hvaða glæp sem er "Skrattinn freistaði mig" = "Davíð neyddi mig til þess", en einungis einfeldningar taka svona bókstafstrú og óráðshjal trúanlegt, burtséð frá hvað manni þykir persónilega margt miður í fari pólítíkur Davíðs Oddsonar. Sannleikurinn blasir við. Þau eru kannski lýðræðislega kjörin, en það var Hitler nú líka. Lýðræðissinnar eru þau ekki, það hafa þau sýnt með að marg brjóta á fólkinu í landinu, jafnvel í trássi við Hæstarétt, sem þau óvirða eins og þeim sýnist. Hvort sem þau eru að þiggja mútur eða annað kemur til, þá eiga þau ekki skilið að sitja þarna lengi. Sagan sýnir að það að láta fasista og elítista sem óvirða sitt eigið fólk sitja í skjóli "lýðræðis" er stórhættulegt og veit ekki á gott. Við höfum valið, annað hvort kveðjum við land vort og þjóð bless, frelsi vor og mannréttindi, kjör og auðlindir......eða ríkisstjórn þessa. Við höfum þetta val ekki mikið lengur. Tíminn líður hratt að úrslita stund. Láttu ekki þitt eftir liggja http://www.utanthingsstjorn.is

J.S. (IP-tala skráð) 5.11.2010 kl. 11:44

2 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Komdu sæl Bergljót.

Þarf ekki fólk líka að vera duglegra að hjálpast að hér á landi?   Veit um konu sem tók að sér 3 fjölskyldur sem hún vissi um og voru í miklum fjárhagsvanda.  Fólk með börn.   Hún fór af stað og bað alla sem gátu um að gefa smá peninga, föt og mat. Hún skipti þessu á milli fjölskyldnanna. Hún leitaði að fatnaði hjá fólki sem var aflögufært og fór þá eftir aldri fólksins sem hún var að hjálpa og því hvað þau vantaði.  Síðan komu fjölskyldurnar, ein og ein í einu til hennar og þau tóku þau föt sem þau þurftu og passaði á þau.  Þess má geta að hún sagði engum hverjar þessar fjölskyldur voru, hélt algjöran trúnað við þau, og þannig á maður að gera hlutina að mínu mati.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 5.11.2010 kl. 15:59

3 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Sæl Margrét.

Auðvitað er samstaða og samheldni borgarannaaf hinu góða, en dugar þó engan veginn til. Yfirvöld verða að skilja skyldu sína að sjá öllum þegnum ríkisins fyrir mat og húsaskjóli. Síðan getum við hin hjálpað þar sem við sjáum þörfina mesta. Þetta frumkvæði konunnar er henni til stórsóma og vonandi að fleiri taki sig til á svipaðan hátt.

En til framtíðar eigum við ekki að þurfa að byggja á hjálparstarfi, hvorki hjálparstofnana né einstaklinga til framfærslu þegnanna. Stjórnvöld eiga að sjá til þess að allir hafi vinnu og komist sæmilega af. Það má alveg bíða með ýmsar framkvæmdir á meðan ríkis- og borgarstjórnin syngja sitt síðasta.

Síðan er ekkert annað að gera en að vona að við berum gæfu til að kjósa eitthvað annað en það sem við höfum yfir okkur. Því miður kem ég ekki auga á hvað það ætti að  vera, en vonandi koma tímar og ráð. 

En þessu biðraðaástandi verður að linna og það strax. Það getur enginn staðið af reisn í þessari niðurlægingu og hvað gerist þá? Um það ættu þeir að hugsa sem stjórna og bera ábyrgðina.

Bergljót Gunnarsdóttir, 5.11.2010 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband