Við Geisli sonur Eldlukku

Fann þessa mynd af okkur Geisla mínum, sem var tekin daginn sem ég sótti hann til Eldlukku, þá tveggja mánaða gamlan. Ég á Eldlukku mikið að þakka því Geisli, sem er sonur hennar, og er að verða stór og stæðilegur tæpl. 6 mánaða hvolpur, er alger geisli í lífi mínu, þó svo að hann vilji helst ekkert annað gera en stökkva upp í alla stóla og sófa, sem er bannað, klóra sundur áklæðið á stólnum, sem ég yfirdekkti sl. haust, og finnist ekkert betra sér til matar en fína persneska mottan mín. 6&%$#=))((/&%$$PL/// Svona er nú, ástin, hún fyrirgefur allt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þið eruð rosaflott saman

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.1.2013 kl. 00:51

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 7.1.2013 kl. 12:41

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Hann er æði! Takk fyrir góða kaffið í dag og takk fyrir móttökurnar bæði tvö :)

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.1.2013 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband